Við fáum ansi mikið af fyrirspurnum frá ferðaþjónustufyrirtækjum um heimasíðugerð, sérstaklega eftir að vefur Saga Travel fór í loftið en sá vefur hefur orðið til þess að auka sölu á ferðum til muna.
Þess vegna ákváðum við að búa til pakka fyrir ferðaþjónustufyrirtæki sem vilja selja ferðir um Ísland á einfaldan og skilvirkan máta og útrýma öllum flækjustigum sem geta fylgt því að selja ferðir.
Í pakkanum okkar er nefnilega frekar hressandi “plugin” sem okkur finnst algjörlega mergjað. Já, við erum að reyna að koma orðinu mergjað aftur í tísku! Þetta „plugin“ er búið til fyrir WordPress og brúar bilið á milli Bókunar, sem flestir í ferðaþjónustunni nota til að halda utan um ferðir, og heimasíðu ferðaþjónustuaðilans.
Við erum brjálæðislega stolt af þessari tengingu. Og já, við vitum hvað þið eruð að hugsa: Hvernig getur eitt „plugin“ gert fólk svona yfir sig hamingjusamt? Einfaldlega út af því að það virkar svo rosalega vel og við höfum dæmi til að sanna það. Ekki bara Saga Travel, sem við minntumst á hér í byrjun færslunnar, heldur líka heimasíða hestaleigunnar Laxnes. Eftir að við brúuðum þetta bil fyrir fólkið þar hefur sala á hestaferðum aukist um næstum því helming – og tekjurnar eru eftir því.
Pakkinn okkar, með þessu geggjaða „plugin“ sem við fáum ekki leið á að tala um, kostar skitnar 499.000 krónur + vsk (þarf alltaf að vera vsk?!) en við teljum að þessi fjárfesting eigi eftir að borga sig upp á örskömmum tíma.
Ef þú þarft á frekari sannfæringu að halda þá geturðu bara komið og fengið þér köku með okkur. Hún er alveg ókeypis en gæti kostað þig nokkrar mínútur af einskærri og yndislegri sykurvímu.